Yo! CoxButter er hugarfóstur og samstarfsverkefni hip-hop tónlistarmannanna Class B og Didda Felix úr reykvíska rapp-quintetnum Forgotten Lores, og margmiðlunar- hönnuðarins Ægis Æx aka ChillusMaximus.
Markmið okkar er einfalt; að skapa beint og óheflað aðgengi á milli tónlistarmanns og áheyrenda, á sem einfaldastan og ódýrastan hátt.
Öllum útgáfum CoxButter verður dreift í gegnum heimasíðu okkar í MP3 formi, algerlega ókeypis. Sumir spyrja sig eflaust hvernig það geti hagnast listamanninum að gefa plötur sínar á netinu endurgjaldslaust. Við viljum meina að auður eigi sér margar birtingamyndir og þar sem ekki er hægt að afla fjár megi græða á fleiri vegu. Að skapa sér nafn, að ná eyrum fólksins, að eignast aðdáendur eru þættir sem eru tónlistarmanninum nauðsynlegir til að skapa honum og tónlist hans hljómgrunn.
Aðgengi að fjármagni og traustir dreifingaraðilar eru hins vegar mikilvægir þættir þegar kemur að hefðbundinni útgáfu tónlistar. Því miður hafa þeir listamenn sem halda sig á jaðarsvæðum tónlistarheimsins ekki alltaf geta treyst á að þessir síðastnefndu þættir standi þeim til boða. Með stofnun CoxButter viljum við gefa tónlistarmönnum okkar þann möguleika að fara fram hjá milliliðunum, með öllum tilheyrandi kostnaði og vinnu, og koma tónlistinni beint í hendurnar á áheyrendunum...