Vald Wegan - Lögmál Hafsins Ljósvaki - Ljósvaki EP 7berg - Of góður dagur til að borga reikninga Icelandic English Vald Wegan - Lögmál Hafsins Ljósvaki - Ljósvaki EP 7berg - Of góður dagur til að borga reikninga Home Releases Mailing List Coxbutter @ MySpace About Coxbutter Contact Us
Earmax - Råcksta Vibes

Earmax

Råcksta Vibes

Proddarann Earmax þekkja allflestir HipHop dúddar sem einn allra færasta á sínu sviði. Nú er komið að því að þið fáið tækifæri til að heyra nýtt stöff með kauða, plötuna "Råcksta Vibes".

Eins og margir vita þá bjó Earmax í langan tíma í Svíþjóð og er "Råcksta" einmitt hverfið þar sem hann bjó í Stokkhólmi. Þetta er plata unnin út frá innblástri frá þeim tíma og er megnið af hugmyndunum unnið þar árið 2004.

Þetta er eins og hann kallar það "Danstónlist fyrir alvöru HipHop gangsters!" Já, Earmax hefur aldrei verið hræddur við að prófa sig áfram og koma öðrum sem sjálfum sér á óvart og enn og aftur sýnir hann það hér. Hér finnið þið lög sem ykkur langar að svitna við, lög sem fá hárin til að rísa og lög sem fá ykkur til að halda að þið séuð á krakki.

Þannig að bara “blaze it up” og “enjoy good music!”

Download now!