Vald Wegan - Lögmál Hafsins Ljósvaki - Ljósvaki EP 7berg - Of góður dagur til að borga reikninga Icelandic English Vald Wegan - Lögmál Hafsins Ljósvaki - Ljósvaki EP 7berg - Of góður dagur til að borga reikninga Home Releases Mailing List Coxbutter @ MySpace About Coxbutter Contact Us
The ThunderCats - The Eye of Thundera

The ThunderCats

The Eye of Thundera

The ThunderCats var stofnuð vorið 2006 af S.Creeezy og Fonetik Simbol, tveimur af fjórum meðlimum hljómsveitarinnar Original Melody. Markmið þeirra með "The Eye Of Thundera!" var að skapa ferska og jaðarbundna Hip Hop tónlist stútfulla af sniðugum conceptum og rugluðum rímum yfir hráa takta.

The ThunderCats hafa ekki einungis komið fólki að óvart með tónlist sinni, sem er óhætt að segja algjörlega á sinni eigin bylgjulengd, heldur líka með nafninu þeirra. (Og til gamans má geta að þeir byrjuðu að gera tónlist undir þessu nafni langt á undan íslensku rokksveitinni ThunderCats). Félagarnir tveir ákváðu að nefna sig eftir teiknimyndunum frá níunda áratugnum þar sem þær voru þá, og eru enn, í miklum metum hjá þeim. Báðir tóku sér nöfn úr þáttunum, Creeezy varð þannig Lion-O og Fonetik varð að Panthro; eftir tveimur af aðalpersónunum í gallharðri, endalausri baráttu gegn máttaröflum hins illa!

Mörg laganna eru byggð á efni einstakra þátta auk þess sem platan er stútfull af tilvitnunum og hlóðbútum úr uppáhalds teiknimyndum Kattanna. Niðurstaðan er þessi - Þrumukettirnir koma með illaðasta neðanjarðar skítinn eins og þeim einum er lagið, check it!

Download now!