 |
Vald Wegan Lögmál Hafsins
- BEINT ÚR BLOKKINNI!
Einn haustdag árið 2006 var Vald Wegan á röltinu niðri í Laugardal.
Hann hafði hitt spreyjaranna sem enga virðingu bera fyrir neinu.
Þeir höfðu ætlað honum mein en hann rétt undan þeim slapp!
Inn í grasagarði var friður og ró, Vald Wegan rúllaði upp rettu.
Þá birtist skringileg vera í skammdeginu; Fonetik Simbol var maðurinn.
Þeir félagar höfðu ekki hist í heilt ár, eða frá gerð disksins "2HH".
Vald Wegan hafði lengi haft hugmynd um að gera nýjan disk.
Disk sem tengdist hafinu, hann bar þessa hugmynd undir Fono.
Úr því varð "Lögmál Hafsins".
"Lögmál Hafsins var tekinn upp þegar veturinn byrjaði.
Diskurinn inniheldur sögur af Vald Wegan, Storm Crow,
Back2Jean, Fonetik, La Lurid Lyric og GOON.
Kettir koma mikið við sögu en þeir eru óargadýr í 104.
Hlusta skal á diskinn með það í huga að lögin tengjast
sum hver hvert öðru hvað varðar söguþráð.
Femínistar og furðulegir karlmenn skulu ekki vera sárir.
Þetta er aðeins mín skoðun, mér er SKÍTsama!
Við vonum að diskurinn valdi hamingju og ánægju hlustenda."
-Vald Wegan |