Vald Wegan - Lögmál Hafsins Ljósvaki - Ljósvaki EP 7berg - Of góður dagur til að borga reikninga Íslenzka English Vald Wegan - Lögmál Hafsins Ljósvaki - Ljósvaki EP 7berg - Of góður dagur til að borga reikninga Heim Útgáfur Póstlisti Coxbutter @ MySpace Um Coxbutter Hafa samband

Halló! Hvað segir fólkið?

22.09.'09

Við færum ykkur nýja plötu frá hinum dularfulla VALD WEGAN.

Hver er þessi maður? Hvaðan kemur hann? Og hvað vill þessi maður? Maður sem háir harða rimmu við drauga, heimilisketti, spreyjara og löggur. Maður sem elskar diet kók og kex. Maður sem hefur misjafnar hugmyndir um hitt kynið. Maður sem er á Chop Shop coverinu að logsjóða vínyl. Hlustið á plötuna LÖGMÁL HAFSINS og kannski kynnist þið honum örlítið betur.

Svo hvetjum við alla til að kynna sér RÉTTIR tónleikahátíðina sem við hjá CoxButter eigum í góðu samstarfi við um þessar mundir. Á fimmtudaginn 24. sept munum við halda tónleika á Jacobsen sem hluti af hátíðinni og við hvetjum alla til að mæta. Nánari upplýsingar er að finna á FACEBOOK SÍÐU COXBUTTER.

Svo fer að líða að því að við bregðum síðunni í nýjan búning svo fylgist með!

Bless í bili..




Ljósið skín

22.07.'09

Nú þegar dagarnir fara senn að styttast á ný er gott að líta bjartari augum á tilveruna.

Ljósvaki heitir nýji vinur okkar og hann er ekkert annað en bjartsýnin.

Ljósvaki EP er frumraun hans sem söngvara/lagahöfunds og hún er einmitt það sem við héldum að þið þurfið í síðsumar sólinni..




Góðan daginn!

09.07.'09

Góður dagur í dag. Allavega of góður til að borga reikninga. Frekar svona góður dagur til að fella niður skuldir. Það finnst rappreynsluboltanum 7berg að minnsta kosti og við erum svo heppnir að fá nýja plötu frá kallinum - "Of Góður Dagur Til Að Borga Reikninga".

Setjið þetta shit í kassettutækið og njótið sumarsins í Reykjavík, eða hvar sem þið eruð stödd.

Svo minnum við á hin mánaðarlega Coxbutter kvöld á Jacobsen í Austurstræti, nánari upplýsingar er að finna á Facebook síðunni okkar.

High five og gleðilegt sumar.

Coxbutter fam.




YO!

03.03.'09

Sorrí með okkur.. kreppa, tölvuleysi og millilandaflutningar hafa sett sitt mark á framboð stafræns smjörz.. En nú skal bætt úr!

PUSH PADS koma sterkir inn með blóðhráa og grimma plötu fyrir takthausanna. Þeir félagar PROGRESSIVE og FONETIK SIMBOL mönnsuðu yfir sig í stúdíóinu og settu saman "THE CHOP SHOP" í minningu Cadillacsins hans Pro, sem er núna í bílahimnaríki - RIP.

Annars er meira nýtt shit á leiðinni fyrir Nýja Ísland, hvað er betra í efnahagskreppunni en ókeypis músík?! Lifi byltingin...




Tvisturinn

26.09.'08

Heil og sæl. Hefurðu einhvern tímann prufað að setja tvær pulsur í sama brauðið? Nei? Þú ert ekki að missa af neinu æðislegu, en ekki missa af fyrstu tvöföldu útgáfu CoxButter!

Tvær plötur í fullri lengd ykkur til áheyrnar og ánægju:

- Ein frá MC Rain (TMC, Audio Improvement) og Byrki (Forgotten Lores). Þjáningabræðurnir snúa bökum saman sem sækadelíska-dúóið Regnskóg, á töfralækninga trippi um andaheiminn á "Lungu Heimsins". Andaðu djúpt...

- Og önnur frá reynslubolta-beatmaker Steve Sampling og vitorðsmanni hans Ragúel með sína fyrstu plötu saman "Það Sem Verður Til". Beats og rímur fyrir þá sem á þurfa að halda. Tjekkið á þessu...

Tjekkið líka á heimaling Moonshine með illaða mixtape seríu á www.moonshine.podomatic.com.

Vonandi að þið fílið þennan tvöfalda CoxBorgara gott fólk.

Þar til næst...




Ferskur kattamatur: ÞRUMUKETTIR, HÓ!

19.05.'08

80's teiknimyndir voru the shit!

Maður vaknaði fyrir dögun um helgar til að missa alveg pottþétt ekki af skrípóinu á meðan það þurfti traktor til að koma manni á fætur aðra daga vikunnar. Og þá óskaðiru þess að það væri kominn helgi, ekki satt..

En óttist ei! Það er engin ástæða til að sofa á nýjustu viðbót okkar á matseðilinn: The ThunderCats Project - "The Eye Of Thundera!".

Manni finnst maður vera kominn aftur á náttfötunum inní stofu, munchandi hunangs-cheerios á sunnudagsmorgni að horfa á uppáhalds teiknimyndirnar sínar. Eða þannig erum við hér hjá CoxButter a.m.k. að fíla þessa plötu..

Njótið vel, tónlistarinnar og látið sjá ykkur fljótt aftur..

Friður!




Bassalína í skónum mínum

30.03.'08

Apríl er að detta inn og vorið er í loftinu. Við hérna í CoxButter höfuðstöðvunum gátum ekki hugsað okkur betri leið til að kveðja veturinn en með að gefa ykkur Veturmær, fyrstu plötuna hans Neðanjörðurs.

Við viljum þakka öllum þeim sem hafa bætt CoxButter við mataræðið sitt og vonum að þið kíkið við reglulega. Pííss!




Sunnudags Leti

09.03.'08

Skrambinn, helgin er næstum búin. Aftur í skólann/vinnustaðinn með kerfið endurhlaðið og tilbúin að gera foreldrana stolta ekki satt... nei?

Þá erum við með smáræði handa ykkur til að auðvelda gömlu helgar-mánudags skiptinguna. Fyrsta solo verkefni CLASS B, "Upset EP" er, frá og með deginum í dag, fáanleg handa þér og þínum.

Og ef þið hafið ekki enn skráð ykkur á póstlistann, hvers vegna ekki að gera það núna? Við lofum að senda bara kúl pósta þegar eitthvað kúl gerist. Ókei? Gebbað...




Hlýjar vetrarkveðjur...

02.03.'08

Eru kuldinn og myrkrið að gera út af við ykkur? Hvernig væri þá að fá sér smá endurnærandi CoxButter til að halda á sér hita?

Tjekkið á Råcksta Vibes, nýjustu plötu Earmax, sem stendur hér með til boða og við vonum að hún geri galdurinn.

Ef ekki þá er nóg af úrvals bræðingi í í ofninum; Class B, Arkir (Intro & Byrkir úr FL), Neðanjörður, Thundacats (Fonetik & S. Cro úr Original Melody) og Audio Improvement hafa allir staðfest að þeir eigi til eitthvert góðgæti handa ykkur sem verður fáanlegt á síðunni á næstu vikum.

Svo harkið af ykkur hrollinn og fylgist með...




Afgangar

02.01.'08

CoxButter, í samstarfi við reykvísku rappsveitina Forgotten Lores, hefur ákveðið að hefja nýja árið með smá uppgjöri við þau gömlu.

Frá árinu 2000 hafa fimmenningarnir í FL starfað saman og nú, átta árum og tveimur breiðskífum síðar er kominn tími fyrir nýárs hreingerningu.

"REST OF 2000 - 2007" er samansafn af gömlum og fágætum upptökum, áður óútgefnu efni og endurhljóðblöndunum sem hafa hrúgast upp í safni þeirra gegnum árin.

Hvernig er betra að fagna nýja árinu en með smá nostalgíu trippi!

Gleðilegt nýtt ár frá CoxButter krewinu...




Gleðilegt Nýtt Ár

01.01.'08

Við hjá CoxButter óskum þér og þínum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir allan þann stuðning sem okkur hefur verið sýndur á liðnu ári.. pís...




NÚ ER HÁTÍÐ Í BÆ!

15.12.'07

Yo! Verið öll velkomin á WWW.COXBUTTER.COM!!!

Og hvaða vitleysa er það nú eiginlega? Ekkert minna en fyrsta netsíða sinnar tegundar í íslenskri tónlistarflóru. Netsíða með það eina markmið að grafa upp góða, áhugaverða tónlist og koma henni beint í hendurnar á þér!

Jólin eru rétt handan við hornið og það hentar ágætlega að senda síðuna okkar á flug í hinum gjafmilda anda hátíðanna þar sem stefna okkar er að gefa allar CoxButter plötur út á netinu ókeypis til niðurhals! Svo endilega veittu þér eina litla fyrirfram jólagjöf til að lina stressið.

Náðu í fyrstu plötuna sem við kynnum með stolti; "HVERNIG RÚLLAR ÞÚ?" með Árbæjar rapköttunum DIDDI FEL & G. MARIS.

Og ef þú finnur augnablik til að skrá netfangið þitt á póstlistan okkar þá látum við þig vita þegar næsta plata dettur inn. Hvaða útgáfur framtíðin ber í skauti sér kemur betur fram síðar, hafið það bara öll sem best í millitíðinni og takk fyrir heimsóknina!

Opnaðu CoxButter dós og gæðin koma í ljós, friður...